75% laga í ESB ríkjum koma frá ESB

Þeir sem aðhyllast Evrópusambandsaðild virðast einungis horfa á það sem Samfylkingin er að benda á og önnur gylliboð. Eins og lægri skólagjöld, öruggari gjaldmiðil og þess háttar og halda að Evrópusambandsandstæðingar
séu bara að hugsa um fiskveiðina. Það er ekki svo. Það er svo miklu, miklu meira sem spilar inn í... og hér fyrir neðan eru nokkrir hlutir sem vert er að íhuga.
 
-Forseti Evrópuþingsins sagði að 75% þeirra laga sem sætt væru í Evrópuríkjum kæmu frá ESB og þegar Lissabon sáttmálinn gengur í gegn þá verði það 100%. Viltu að lítil Evrópunefnd setji öll þín lög sem fara svo í gegnum Evrópuþing þar sem Ísland myndi hafa 1% atkvæða?
http://www.youtube.com/watch?v=dmK-f88gcx8

-Atvinnuleysi hefur lengi verið margfalt meira að meðaltali innan Evrópusambandsins en á Íslandi? Meðalatvinnuleysi innan Evrópusambandsins hefur um árabil verið viðvarandi í kringum 7-10%.

-Þeir einu sem mega leggja fram lög í ESB er Evrópunefndin (27 manns)

-EES er ekkert eins og ESB.... EES er ekki með dómstól, löggjafarvald, þing, "þjóðsöng", fána, stækkunarstefnu og bráðum flest það er einkennir ríki.

-Endurskoðendur ESB hafa neitað að skrifa undir bókhald sambandsins í 14 ár vegna þess að allt að 90% útgjalda sambandsins eru óútskýrð.

-Taki Stjórnarskrá Evrópusambandsins (Lissabon-sáttmálinn) gildi verður sambandið í raun komið með allt það sem einkennir ríki samkvæmt alþjóðlegum skilgreiningum?

-Kannanir eru að sýna að Bretar vilja skrá sig úr Evrópusambandinu, stór ástæða fyrir því að ESB aðild kostar Breska ríkið 40 milljón pund á dag.

-Landamæri eru svo opin og munu með Lissabonsáttmála opnast enn meira og segir Nigel Farage formaður UKIP að bresk yfirvöld hafi í raun ekki hugmynd um hversu margir í raun búa í landinu.

-Heyrst hefur í ræðuhöldum innan Evrópuþingsins að haldi ESB áfram í sömu átt stefni það í að verða líkt og Sovétríkin.

-Kjúklinga- svína og eggjabúskapur á Íslandi mun leggjast af að mestu þar sem hann mun ekki geta keppt við ódýr innflutt matvæli.

mbl.is Samfylking þingar um sáttmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórður

Sífellt er verið að setja ný lög. Evrópunefndin er sú eina sem getur lagt fram lög og já... atkvæðaréttur smæstu þjóðanna á evrópuþinginu er 1%... er það að hafa mikið að segja? Þjóðum er neitað um þjóðaratkvæðagreiðslu á stórum málum eins og Lissabon sáttmálanum því ESB kallarnir vita að fólkið mun segja nei... eins og Írar gerðu, en það er ekki tekið mark á þeirri kosningu og á að láta fólkið kjósa aftur... og líklegast aftur þangað til það samþykkir..... Sama hvað þú segir og sama hvað Samfylkingin hefur heilaþvegið þig mikið þá er það bara þannig að fólkið hefur ekki rassgat að segja þegar kemur að ESB lagasetningum og breytingum!

Þórður, 10.5.2009 kl. 23:43

2 Smámynd: Þórður

og hvernig geturðu sagt að það sé þvæla? Ég er búinn að liggja yfir mynböndum af ræðuhöldum og viðtölum inn á Evrópuþinginu og þau tala sínu máli... þú getur ekki bara sagt að það sé þvæla án þess að styðja mál þitt!!

Þórður, 10.5.2009 kl. 23:44

3 Smámynd: Þórður

Þú virðist glaður gleypa við öllu því sem evrópusinnar troða ofan í kok á þér. Það er svo sem ekki hægt að áfellast þig þar sem lygaáróður af þeirra hálfu hefur verið gríðarlegur, svo ég vorkenni þér öllu heldur en annað.

 En já... Evran er handónýtur gjaldmiðill og heldur löndum í efnahagserfiðleikum í spennitreyju sem þau geta ekki losað sig úr, þar sem þau stýra ekki eigin vaxtastigi etc.

http://www.youtube.com/watch?v=iLGu-dTH6i4

-----------

Evrópunefndin er sú eina sem leggur fram lög, það stendur meir að segja á þessari dúndursíðu sem þú lagðir fram "it is the European Commission that proposes new legislation" þingið og ráðherranefndin fá einungið að ræða og greiða atvkæði. Burtséð frá því þá vil ég ekki að 75% okkar laga komi frá ESB.

 ----------

Lisbon sáttmálinn er mun viðameiri en þér er gert að trúa og það er enginn vafi þar á að fólk á ekki að vita hvað sáttmálinn snýst um í raun og veru fyrr en hann er kominn í gegn. Þetta er ekki bara e-r breytingarsáttmáli... þetta kemst nálægt því að vera stjórnarskrá evrópu. Hér í myndbandinu fyrir neðan geturðu séð danska evrópuþingmanninn Jens-Peter Bonde segja frá hlutunum eins og þeir eru.

http://www.youtube.com/watch?v=8Kr0Foq3CQE

 ----------

Þú þarft að skoða meira heldur en bara þessar glanssíður sem hafa verið skrifaðar af EU og XS og þess háttar samkomum.

Vonandi áttarðu þig einn daginn kallinn minn ;o)

Þórður, 11.5.2009 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband